Efni myndanna
-
Að lifa, að vera til
-
Að lifa, að vera til (Finnland 2007)
Leikstjórn: Reetta Aalto
Lengd: 13 mínúturÞað styttist í stúdentspróf hjá Veera og hana langar sífellt meir að flytja að heiman. Veera er einkabarn og foreldar hennar eiga erfitt með að sætta sig við að hún sé á hraðferð út í lífið á eigin spýtur.



-
Töfradrykkur
-
Töfradrykkur (Svíþjóð 2004)
Leikstjórn: Babak Najafi
Lengd: 26 mínúturFjórir innflytjendastrákar í úthverfi Stokkhólms eru drjúgir með sig þegar þeir finna undarlegan gosdrykk. Líf þeirra umbreytist eftir að hafa smakkað á drykknum. Strákarnir telja sig hafa stjórn á aðstæðunum, en svo fær Marco örlagaríka hugmynd.



-
Góðir gestir
-
Góðir gestir (Ísland 2006)
Leikstjórn: Ísold Uggadóttir
Lengd: 19 mínúturKatrín er íslensk stúlka sem býr í New York með kærustunni sinni. Hún fer til Íslands til að fagna sjötugsafmæli afa síns, en tilfinningar hennar eru blendnar. Ætti hún að upplýsa fjölskylduna um leyndarmál sitt? Hana grunar ekki að í fjölskyldunni leynist fleiri leyndarmál.


-
Ofsóknaræði
-
Ofsóknaræði (Danmörk 2007)
Leikstjórn: Jesper Troelstrup
Lengd: 15 mínúturMaður nokkur er staddur í íbúð í Kaupmannahöfn og smíðar eitthvað sem líkist sprengju. Hann hlustar á útvarpið sem flytur fréttir af skopmyndum af Múhammeð spámanni. Stuttu síðar er hann á ferð í neðanjarðarlestinni og hefur dularfullan bakpoka meðferðis. Hver er þessi maður og hver eru áform hans?



-
Tveir á móti einum
-
Tveir á móti einum (Noregur 2007)
Leikstjórn: Alexander Kayiambakis
Lengd: 10 mínúturMats og vinur hans vaxa úr grasi í austurhluta Oslóborgar á níunda áratugnum. Þeir falla illa inn í hópinn og verða fyrir einelti. Við fylgjumst með Mats þegar hann er orðinn fullorðinn og neyðist til þess, að horfast í augu við fortíðina.







